
Móðurlíf
By Podcaststöðin

MóðurlífDec 13, 2021

24. Fæðingarsaga & fyrstu dagarnir
Lítil Jóhannesdóttir fæddist þann 14.nóvember síðastliðinn, en hún hefur verið með okkur alveg frá fyrsta þætti í móðurkviði.
Í þættinum segir Jóna okkur frá vægast sagt magnaðri fæðingarsögu sinni & fyrstu dögunum eftir að sú litla kom í heiminn.
Þátturinn er í boði :
Einn, tveir & elda
www.einntveir.is

23. Fæðingarreynsla & ófyrirséð veikindi
Gestur þáttarins er Jóna Kristín Friðriksdóttir 33 ára móðir og viðskiptafræðingur.
Við fengum að heyra um erfiða fæðingarreynslu hennar, ófyrirséð veikindi dóttur hennar & af tímanum á vökudeild.
*TW* Við viljum benda á að efni þáttarins getur verið truflandi.
Einnig ræddum við um andlegu hliðina og mikilvægi heimaþjónustu eftir fæðingu.
Þátturinn er í boði
Einn tveir & elda
www.einntveir.is

22. Linnea Ahle - Saga Petit & burnout
Linnea Ahle er þriggja barna móðir, tvíburamamma & brautryðjandi í innflutningi á lífrænum barnafatnaði á Íslandi en hún og maðurinn hennar eiga og reka fyrirtækið Petit ehf sem er ein fremsta barnavöruverslun á Íslandi í dag.
Við spjöllum um bakrunn hennar, uppbyggingu Petit samhliða barneignum, fórnarkostnaðinn og þrotlausu vinnunna í kringum það.
Linnea opnar sig um burnout og ADHD greiningu og er ófeimin við að tala um hlutina eins og þeir eru.
Einlægt og lærdómsríkt viðtal við þessa flottu fyrirmynd.
Þátturinn er í boði :
Einn, tveir & elda
www.einntveir.is

21. Leikskólaaðlögun
Það er mikil breyting í lífi barns (og foreldra) að byrja í daggæslu, hvort sem það er hjá dagforeldri eða á leikskóla.
Í þætti dagsins förum við yfir hvernig þetta gekk hjá okkur og hvað við hefðum viljað heyra áður en barnið byrjaði í aðlögun.
Þátturinn er í boði :
Einn tveir & elda
www.einntveir.is

20. Undirbúningur fyrir komu barns
Þegar von er á barni er vægast sagt margt sem breytist í lífi okkar.
Dínamíkin á heimilinu breytist með hverju nýju barni og er mikilvægt að undirbúa alla vel fyrir þær breytingar sem eru í vændum.
Við vinkonurnar eigum báðar von á barni svo eðlilega eru þessir hlutir okkur ofarlega í huga þessa dagana.
Í þessum þætti förum við yfir okkar persónulegu reynslu af undirbúningi fyrir komu barns og hvernig við höfum undirbúið okkar eldri börn fyrir komu systkinis.
Þátturinn er í boði :
Einn, tveir & elda
www.einntveir.is

19. Hildur Björns - Krabbamein eftir meðgöngu
Hildur Björnsdóttir, þriggja barna móðir og borgarfulltrúi er viðmælandi þáttarins.
Í þættinum segir Hildur okkur frá því þegar hún greinist með krabbamein þegar yngsta barnið hennar er aðeins viku gamalt.
Hún segir okkur frá ferlinu og hvernig hún nálgaðist veikindin gagnvart sínu elsta barni og aðstandendum.
Við ræddum einnig daggæslu- og húsnæðismál í Reykjavík.
Hildur er sönn fyrirmynd en hugarfrið og krafturinn sem hún býr yfir er vægast sagt aðdáunarverður.
Þátturinn er í boði :
Einn tveir & elda
www.einntveir.is

18. Sólveig - Heimakennsla & hæglæti

17. Björkin - heimafæðingar
Björkin fæðingarþjónusta veitir samfellda þjónustu ljósmæðra frá 34.viku meðgöngu og þar til barn er 7-10 daga gamalt.
Við áttum skemmtilegt spjall við Arneyju Þórarinsdóttir ljósmóður og annan eiganda Bjarkarinnar um starfsemi Bjarkarinnar & heimafæðingar.
Þátturinn er í boði :
Einn, tveir & elda
www.einntveir.is
Kóðinn “LÍF10” veitir hlustendum 10% afslátt af matarpökkum í október.
Húsgagnaheimilið
www.husgogn.is

16. Sigríður Björnsdóttir - Sálfræðingur
*TW* Í viðtali þáttarins fjallar Sigríður um kynferðisofbeldi í æsku og efnið getur ýtt undir kveikjur hjá hlustendum. Fyrir þá sem hlusta, er því mikilvægt að hlúa vel að sér ef efnið veldur þeim hugarangri og geri ráðstafanir í samræmi við það. Efninu er ætlað að vera upplýsandi fyrir foreldra barna sem vilja auka þekkingu sína á forvörnum gegn kynferðisofbeldi og hvaða leiðir er hægt að fara til að vernda börn.
Viljum minna á að það er aldrei of seint að leita sér hjálpar og hvetjum hlustendur til að leita leiða sem hentar þeim best.
Hægt er að hafa samband við 1717, Drekaslóð, Stígamót, Aflið Akureyri og hjá sérfræðingum sem vinna með þolendum ofbeldis.
Þátturinn er í boði
Húsgagnaheimilið : www.husgogn.is
Einn, tveir & elda : www.einntveir.is

15. Ebba Guðný - næring barna

14. Uppeldi - okkar áherslur

13. Þórdís Björk - sambandsslit á meðgöngu

12. Tinna Rún - hreyfing fyrir og eftir meðgöngu
Við tölum m.a um líkamsímynd, samfélagsmiðla pressu og mikilvægi þess að hreyfa sig á sínum eigin hraða.

11. Yrja - Foreldrakulnun

10. Létt spjall eftir sumarfrí

9. Ingileif & María - barneignarferlið & móðurhlutverkið
Í þættinum heyrum við reynslu þeirra af barneignaferlinu og móðurhlutverkinu.

8. Lífið eftir fæðingu
Framhald af síðasta þætti þar sem við ræðum reynslu okkar af sængurlegunni og fyrstu vikunum eftir að barn kemur í heiminn.

7. Meðganga & fæðing - okkar reynsla

6. Fitby Sigrún - hreyfing á og eftir meðgöngu

5. Helga Reynis - ljósmóðir
Í þessum þætti ræðum við m.a sængurlegu, hlutverk maka og kynlíf eftir fæðingu við Helgu Reynisdóttur ljósmóður.

4. Camilla Rut - fæðingarþunglyndi

3. Sunneva - meðgöngueitrun & fyrirbura fæðing

2. Sandra Ýr - barnsmissir

1. Kynning
Í þessum fyrsta þætti kynna vinkonurnar Díana Karen og Jóna Kristín hugmyndina á bakvið Móðurlíf.